„Það er misskilningur að þetta sé einhver könnunarleiðangur“

„Allar viðræðurnar eru byggðar á því að við ætlum að ganga inn. Það eru allir úti í Brussel sem telja að við séum að biðja um inngöngu. Ef íslensku ráðherrarnir ætla að fara til Brussel og segja: „Við ætlum bara að skoða þetta og sjá til“, þá verður bara hlegið að Íslandi.“Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.Hann tók til máls á stofnfundi hreyfingarinnar Áfram Ísland síðdegis. Hún berst gegn því að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. VÆGI ÍSLANDS VÆRI LÍTIÐ Ólafi finnst tilraun gerð til að sannfæra Íslendinga um að ekkert sé vitað um Evrópusambandið. „Og að það þurfi að fara í einhvern könnunarleiðangur.“En honum þykir óskynsamlegt að Ísland gangi í ESB þar sem „fjarlægar valdastofnanir eiga að fara að ráða miklu um hvað við gerum hér á Ísla
„Það er misskilningur að þetta sé einhver könnunarleiðangur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd