Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar konur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftíma.