Rússnesk stjórnvöld birtu á föstudaginn myndband sem átti að sýna Vladímír Pútín, forseta, heimsækja herforingja sína á fremstu víglínu. Myndbandið reyndist hins vegar ekki tekið upp á víglínunni og hefur reynst hið vandræðalegasta fyrir Pútín.Í myndbandinu, sem er um 40 mínútur að lengd, má sjá Pútín klæddan í herbúning, nokkuð sem hann sést svo til aldrei í, gangandi eftir gangi sem er látinn líta út eins og bardagasvæði. Svo fundar hann með herforingjum um stöðuna á víglínunni. En á þeim fundi er fullyrt að rússneski herinn hafi náð bænum Kostyantynivka á sitt vald.