Rosabaugur yfir Þórsmörk

Mynd / Bragi SvavarssonSólin skein í heiði víða um land í gær. Bragi Svavarsson tók þessa mynd í Húsadal í Þórsmörk þar sem rosabaugur sást umhverfis sólu.Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands myndsast rosabaugur þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu hátt á himni. Í þessari hæð er frost og því ekki vatnsdropar í skýjunum heldur ískristallar.„Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina.“Ískristallarnir eru sexstrendingar og ljósið breytir um stefnu þegar það skín í gegnum þá, en misjafnlega mikið.Veðurstofan segir að algengasta stefnubreytingin sé 22 gráður „og því myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum“.
Rosabaugur yfir Þórsmörk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd