Bandaríski tæknirisinn Microsoft hyggst segja upp 4.800 starfsmönnum á næstunni. Með uppsögnunum missa um tvö prósent allra starfsmanna fyrirtækisins á heimsvísu vinnuna.Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að stærstu breytingarnar verði innan tölvuleikjadeildar Xbox, þar sem um 3.200 störf verða lögð niður á næstu mánuðum. Uppsagnirnar eru þær umfangsmestu í sögu Xbox.Forsvarsmenn Microsoft segja uppsagnirnar hluta af endurskipulagningu fyrirtækisins og auknum fjárfestingum þess í þróun gervigreindar, gagnaverum og tölvuinnviðum.Amy Coleman, framkvæmdastjóri hjá Microsoft, segir fyrirtækið þurfa að laga sig að breyttum aðstæðum og hraðri framþróun í tæknigeiranum. Hún segir uppsagnirnar ekki til þess gerðar að skipta starfsmönnum út fyrir gervigreind þrátt fyrir að sjálfvirknivæðing haf