Fjölskylduhátíðinni Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina hefur vaxið fiskur um hrygg. Í ár er von á metfjölda í bæinn í tengslum við hátíðina - og af því tilefni hefur forvarnarteymi bæjarins sent tölvupóst á forráðamenn allra barna á aldrinum 14-16 ára þar sem ábyrgðarhlutverk foreldra er ítrekað í forvarnarstarfi.Halldór Kristinn Harðarson er einn skipuleggjenda hátíðarinnar og segir hann gott samstarf vera milli skipuleggjenda, bæjaryfirvalda, forvarnaraðila og lögreglu.„Þetta var í rauninni eitthvað sem allir voru að hugsa. Þetta var ekkert eitthvað að einhver leitaði til annars. Það voru allir sammála um að þetta verði bærinn þar sem öllum líði vel en allir séu bara í toppmálum. Þannig þetta er samvinnuverkefni og við fögnum umræðunni,“ segir Halldór Kristinn. EIN MEÐ