Íris Dröfn Árnadóttir hefur verið sett sýslumaður á Austurlandi og Bryndís Héðinsdóttir sýslumaður á Norðurlandi eystra frá og með 1. ágúst.Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, hefur beðist lausnar úr embætti. Hann tekur við starfi sveitarstjóra Húnabyggðar 1. október.Svavar hefur verið sýslumaður á Norðurlandi eystra frá árinu 2015 og settur sýslumaður á Austurlandi síðan 2024. Þar áður var hann sýslumaður og lögreglustjóri á Húsavík.Öll sýslumannsembættin verða sameinuð í eitt embætti þann 1. janúar 2027 þegar lög um sýslumann taka gildi. Nýr sýslumaður verður skipaður í ágúst. Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að þetta sé ein stærsta stjórnsýslubreyting síðari ára.