Nokkrir hnökrar hafa verið við útfösun 2G- og 3G-fjarskipakerfanna hér á landi. Enn eru um 6.000 símar sem ekki ná sambandi við Neyðarlínuna, erlendir ferðamenn lenda í vandræðum vegna uppfærslna og eCall-neyðarhringikerfi margra bifreiða er óvirkt.Í viðtali við fréttastofu 30. júní sagði Logi Karlsson, framkvæmdastjóri tækniþróunar hjá Símanum, að ríkinu hefði staðið til boða að taka við rekstri fjarskiptakerfana en það væri kostnaðarsamt og óskynsamlegt af einkaaðilum á borð við fjarskiptafélögin að halda úti rekstri þeirraÍ skriflegu svari til fréttastofu segir Fjarskiptastofa:„Eftir því sem best er vitað kom þessi hugmynd einungis fram í óformlegri umræðu á fyrstu stigum verkefnisins. Hún varð hvorki að formlegri tillögu né erindi til stjórnvalda eða Fjarskiptastofu og því var ekki tek