Átta voru handtekin og yfirheyrð í tengslum við það að lögregla stöðvaði þrjár kannabisræktanir á mismunandi stöðum á suðvesturhorninu.Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Átta húsleitir voru framkvæmdar vegna rannsóknarinnar og hald lagt á tæplega 800 kannabisplöntur, nokkurt magn annarra fíkniefna, fjármuni og búnað til ræktunar.„Ræktanirnar voru nokkuð stórar og er það mat lögreglu að í öllum tilvikunum hafi efnin verið ætluð til sölu og dreifingar.“Rannsókn er sögð miða vel en embættið naut aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum og lögreglunnar á Suðurlandi við aðgerðir.Fréttastofa greindi frá málinu fyrr í dag. Að sögn aðalvarðstjóra voru ræktanirnar staðsettar í Reykholti í Bláskógabyggð, Kjós og á Reykjanesi.