Allt of dýrt, fá góð söfn, matur sem hentar ekki öllum og allt of langt frá helstu ferðamannastöðum. Þetta er á meðal þess sem er nefnt í greiningu spænska miðilsins Numbeo sem gerir Reykjavík að versta áfangastað fyrir Spánverja í gervallri Evrópu. BORGA MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ Reykjavík trónir á toppi listans yfir evrópskar borgir sem Spánverjum er ráðlagt að forðast af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna verðlags. Reykjavík er ofar en borgir eins og Zurich, Amsterdam, Flórens og París.