Í minnisblaði Akureyrarbæjar um eignasafn bæjarins á félagslegum leiguíbúðum segir að það sé frekar gamalt og fylgi ekki þróun og vexti bæjarins. Heildarendurnýjun þurfti á 11 íbúðum af 25, sem skilað hefur verið úr leigu á árinu, vegna slæmrar umgengni íbúa.„Það koma upp alls konar mál í samfélaginu okkar, fólk í viðkvæmri stöðu – veikt fólk sem er í þessum íbúðum að einhverju leyti og þó að ég geti ekki farið út í einstaka mál eða hvernig hvert og eitt er, þá virðist þetta vera að aukast, að það eru þyngri mál í kerfinu og þegar slíkir einstaklingar eru að flytja fylgir oft kostnaður. Það er bara eitthvað sem fylgir því,“ segir Óðinn Svan Óðinsson, formaður bæjarráðs á Akureyri. TAKA ALLAR EIGNIR Í HRÍSEY OG GRÍMSEY ÚT ÚR KERFINU Til stendur að endurnýja íbúðir í félagslega kerfinu en