Pétur Georg Markan sem ráðinn var bæjarstjóri Grindavíkur á dögunum hefur talsverða reynslu á bakinu þar sem hann gegndi síðast starfi bæjarstjóra í Hveragerði og var einnig sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í fimm ár. Hann hefur einnig komið að fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila auk þess sem hann var biskupsritari um tíma og stýrði samskiptum þjóðkirkjunnar. Pétur ræddi um verkefnin sem eru í forgangi í Grindavík í morgunþættinum Fram undan á Rás 2. GÓÐUR GRUNNUR TIL STAÐAR Í GRINDAVÍK „Grindavík er algjörlega einstakur bær, á íslenska sveitarfélagavísu. Hann hefur alltaf boðið upp á gæðaþjónustu og það eru gæði í Grindavík,“ segir Pétur sem tekur við starfinu af Fannari Jónassyni sem gegndi því frá 2017 og var andlit bæjarins þegar jarðhræringar