Segjast ekki hafa þurft aðstoð MAST við að finna hvalskipin

Samtök Pauls Watson skipstjóra gefa lítið fyrir ásakanir Kristjáns Loftssonar gegn Matvælastofnun um að stofnunin hafi komið samtökunum á slóð hvalveiðiskipanna. Samtökin segjast hafa fylgst með ferðum hvalveiðiskipanna frá landi allt frá 2018, með leiguskipi sem fylgdist með skipinu sjónrænt og með ratsjá á meðan á hvalveiðivertíðinni stóð sumarið 2022.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum, Captain Paul Watson Foundation (CPWF), sem standa að baki aðgerðum skipsins Bandero.Þar segir að þrátt fyrir að Hvalur 8 og 9 hafi haft slökkt á staðsetningarbúnaði í áraraðir hafi samtökin fylgst með ferðum þeirra með öðrum leiðum.„Upplýsingar CPWF frá síðustu þremur leiðöngrum eru nægar til þess að leiða Bandero á svæðin þar sem hvalskipin finna fórnarlömb sín á mismunandi tímum veiðitímabils
Segjast ekki hafa þurft aðstoð MAST við að finna hvalskipin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd