Úkraínski flugherinn segir skort á loftvarnarflaugum hafa orðið til þess að ekki tókst að skjóta niður neinar eldflaugar í stórfelldri árás Rússa á Kyiv í gærkvöld. Forseti landsins varar við áframhaldandi árásum næstu daga.Í það minnsta átján voru drepnir og tugir særðust þegar Rússar gerðu miklar flugskeyta- og drónaárásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Þetta er önnur stóra árásin á Kyiv á innan við viku en á fimmtudag voru 31 drepnir þegar Rússar gerðu umfangsmestu árás á borgina frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022.Í samtali við erlenda fjölmiðla segir úkraínski flugherinn alvarlegan skort á loftvarnarflaugum hafa verið ástæðu þess að ekki tókst að skjóta niður neina af þeim 23 eldflaugum sem Rússar skutu á Kænugarð í gær. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, segir árásina hafa