Lögreglu- og hermenn eru víða á götum og breiðstrætum Ankara, nú þegar innan við sólarhringur er þangað til leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í borginni og þrjátíu og tveir þjóðarleiðtogar koma þangað, auk ráðherra utanríkis- og varnarmála. Fulltrúar fjölmiðla eru velflestir komnir hingað og fyrsti viðburðurinn verður síðdegis, þegar Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO heldur hefðbundinn blaðamannafund, daginn fyrir leiðtogafundinn.Segja má að viðamiklar árásir Rússa á Kyiv og aðrar borgir í Úkraínu að undanförnu setji tóninn fyrir þennan fund í Ankara. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hefur í kjölfarið hvatt leiðtoga NATO ríkjanna til að efla stuðning sinn, sérstaklega hvað varðar loftvarnakerfi.Á leiðtogafundinum stendur til að samþykkja yfirlýsingu um tuga milljarða evra hern