Íslensk lögregluyfirvöld komu að umfangsmikilli alþjóðlegri aðgerð gegn mansali sem leiddi til handtöku rúmlega þúsund einstaklinga og þess að yfir tvö þúsund möguleg fórnarlömb fundust. Þetta kemur fram í árlegri samantekt Europol um aðgerðina Operation GLOBAL CHAIN, sem fór fram dagana 8.–12. júní.