Í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hrækja á lögreglumann

Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt á lögreglumann í lögreglustöðinni að Hverfisgötu í Reykjavík í fyrra. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem féll fyrir helgi, segir að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og það sé honum til málsbóta. Þá hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.Dómnum fannst refsing ákærða því hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, en að fullnustu refsingarinnar yrði frestað og hún falli niður að liðnum tveimur árum, haldi ákærði skilorði.Lögreglustöðin við Hverfisgötu.Þ / RÚV
Í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hrækja á lögreglumann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd