Ekki hægt að byggja umhverfisvænna mannvirki en það sem fyrir er

Rífa á stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug í Reykjavík sem telst hættuleg í nýju áhættumati. Margir harma það því stúkan hefur verið eitt helsta kennileitið í Laugardal síðan 1968. Steinþór Kári Kárason, arkitekt og eigandi arkitektastofunnar Kurt og pí, er einn þeirra. Hann var gestur Fram undan á Rás 2 í morgun.„Mér finnst dapurlegt að við leyfum þessu að gerast. Þetta er mjög fallegt og áhugavert mannvirki.“Steinþór segir að viðhaldsleysi sé áberandi í borginni og birtist meðal annars í myglu og öðrum skemmdum. Mikilvægt sé að snúa þeirri þróun við og þarna sé tækifæri til að setja fordæmi. Nú er tvennt í stöðunni að hans mati.„Það er hægt að laga stúkuna. Ég veit að það er hægt en þetta snýst auðvitað um kostnað. Hitt, sem er kannski áhugaverðara, er hvað á að gera í sta
Ekki hægt að byggja umhverfisvænna mannvirki en það sem fyrir er

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd