Fimm vændiskaupendur voru handteknir í lögregluaðgerð í Reykjavík í vikunni 8. til 12. júní. Afskipti voru höfð af sextán vændiskonum, sem taldar eru hafa verið gerðar út af kínverskum glæpasamtökum. Allt var þetta hluti af samræmdum aðgerðum í 59 löndum víðs vegar um heim.Evrópulögreglan Europol sendi frá sér tilkynningu um málið nú klukkan 12. Þar kemur fram að aðgerðirnar hafi gengið undir heitinu Global Chain, eða Heimskeðjan, og hafi verið stýrt frá tveimur miðstöðvum, annarri í Skopje í Makedóníu og hinni í Rio de Janeiro í Brasilíu. Aðgerðunum var sérstaklega beint að mansali – ekki síst vændismansali, en líka mansali þar sem fólk er neytt til að stunda glæpi og betla.Í aðgerðunum hafi 1.024 verið handteknir, þar af 334 grunaðir um mansal, og að ætlaðir þolendur í málunum séu 2.070,