Lögðu hald á um 800 kannabisplöntur á þremur stöðum

Sex voru handteknir, grunaðir um aðild að umfangsmikilli kannabisræktun á þremur stöðum sem lögregla upprætti. Hald var lagt á tæplega 800 plöntur.Nýlega var greint frá því að ræktun 200 kannabisplantna hefði verið stöðvuð í Reykholti í Bláskógabyggð. Lögregla gerði auk þess húsleit í sumarbústað í Kjós í lok júní þar sem virðist hafa verið ræktun um nokkurn tíma. Þá uppgötvaðist ræktun einnig á Reykjanesskaga.Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu.„Það var ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum og lagt hald á kannabisplöntur á þremur, tæplega 800 í heildina.“ Lögregla hefur einnig lagt hald á tilbúin fíkniefni.Rannsakað er hvort ræktunin tengist skipulagðri brotastarfsemi.Vísir greindi frá því að lögregla og sérsveit hefðu ráðist í handtökur
Lögðu hald á um 800 kannabisplöntur á þremur stöðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd