Sex slasaðir í rútuslysi

Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna rútu sem valt í Suðursveit. Útkallið barst klukkan 10:15 og fyrstu viðbragðsaðilar komu á staðinn skömmu fyrir klukkan ellefu. Þrettán voru í rútunni, sex eru slasaðir en enginn er talinn vera í lífshættu.Þetta staðfestir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Þjóðveginum hefur verið lokað.Lögreglan hefur óskað eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar og hún er á leiðinni á vettvang. Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í viðbragðsstöðu.Fréttin verður uppfærð.
Sex slasaðir í rútuslysi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd