Virkjuðu viðbragðsáætlun á SAk vegna rofs á fjarskiptum

Viðbragðsáætlun var virkjuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í morgun, laust fyrir klukkan níu, þegar rafmagni sló út. Áætlunin var virkjuð vegna rofs á fjarskiptum. Sjúkrahúsið fór strax á varaafl og allt virkaði sem skyldi, segir Hilda Jana Gísladóttir, samskiptastjóri.Rafmagnsleysið olli vandræðum með internet og fjarskipti sem duttu út í 15-20 mínútur og virkja þurfti viðbragðsáætlun. Allt virðist þó komið í lag á nýjan leik. Þetta staðfesti Hilda Jana við fréttastofu. Hún segist ekki vita hvað orsakaði rafmagnsleysið en það væri í skoðun.
Virkjuðu viðbragðsáætlun á SAk vegna rofs á fjarskiptum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd