Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað Vinnslustöðina, Hugin og VÍS af skaðabótakröfum Vestmannaeyjabæjar vegna skemmda á neysluvatslögn og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 dróst eftir hafnarbotninum í nóvember 2023. Dómurinn var kveðinn upp á föstudag en hefur ekki verið birtur.Í yfirlýsingu frá Vinnslustöðinni segir að Vinnslustöðin hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. hafi verið sýknuð af kröfum stendenda og viðurkennt hafi verið að Huginn og VÍS væri heimilt að takmarka ábyrgð sína. Þá hafi dómurinn ekki fallist á að Vinnslustöðin teldist útgerðarmaður skipsins.Vinnslustöðin telur að málinu verði áfryjað og segir því ekki tímabært að tjá sig efnislega um niðurstöðu dómsins.„Við teljum að dómurinn sé mikilvægt skref í úrlausn málsins. Jafnframt ligg