Hamas-samtökin leysa upp stjórnarnefnd Gaza í von um breytingar

Hamas-samtökin hafa ákveðið að leysa upp stjórnarnefndina sem farið hefur með völd á Gaza í nærri tvo áratugi. Í tilkynningu samtakanna segir að til standi að óháð sérfræðinganefnd taki við stjórn borgaralegra málefna á svæðinu.Yfirmaður neyðarstjórnarinnar, Mohammed al-Farra, hefur sagt af sér. Hann segist jafnframt hafa ákveðið að leggja nefndina niður til að greiða fyrir stjórnarfarslegum breytingum. Þær feli í sér að Þjóðarnefnd um stjórn Gaza (e. National Committee for the Administration of Gaza, NCAG) taki við stjórntaumunum.„Með ákvörðuninni hafa Hamas-samtökin tekið skref í átt að því að fara ekki lengur með völd á Gaza. Þetta er gert til þess að fjarlægja allar forsendu fyrir hernámi Ísraela, sem halda áfram árásum sínum og útrýmingu,“ segir Hazem Quassem, talsmaður Hamas, í samta
Hamas-samtökin leysa upp stjórnarnefnd Gaza í von um breytingar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd