Viðbragðsáætlun var virkjuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í morgun, laust fyrir klukkan níu, þegar rafmagni sló út. Að sögn Hildu Jönu Gísladóttur, samskiptastjóra SAk, datt sjúkrahúsið strax inn á varaafl og virkaði allt sem skyldi. Rafmagnsleysið hafði engin áhrif á starfsemina á sjúkrahúsinu sem slíka.Rafmagnsleysið orsakaði hins vegar að internet og fjarskipti duttu út í 15-20 mínútur og þurfti að virkja viðbragðsáætlun vegna þess. Fjarskiptin og internetið eru þó komin í lag á nýjan leik. Þetta staðfesti Hilda Jana í samtali við fréttastofu. Hún segist ekki vita hvað orsakaði rafmagnsleysið ogað það væri í skoðun.