Einn sakborninga í Gufunesmálinu, Matthías Erling Björnsson, afplánar nú eftirstöðvar dóms síns utan fangelsis, þ.e. á áfangaheimili Verndar. Þetta herma heimildir DV.Matthías var ásamt þeim Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvasyni sakfelldur fyrir að hafa ráðið Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára gömlum manni frá Þorlákshöfn, bana, 10. mars árið 2025, en Hjörleifur lést eftir frelsissviptingu og miklar misþyrmingar. Matthías fékk 14 ára fangelsi fyrir sína hlutdeild í málinu en dómurinn var síðan mildaður í 12 ára fangelsi í Landsrétti.