Icelandair flutti 545 þúsund farþega í júní. Það er eilítið minna en í júní í fyrra eða einu prósenti. Sætanýting var tæp 86 prósent og stundvísi tæp 85 prósent.Af farþegum í júní voru 35 prósent á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi og 41 prósent tengifarþegar. Fimm prósent ferðuðust með innanlandsflugi Icelandair.Í tilkynningu frá Icelandair segir að farþegum sem ferðuðust frá Íslandi hafi fjölgað um 12 prósent milli ára og farþegum innanlands um ellefu prósent. Farþegum til Íslands fækkaði um 1 prósent og tengifarþegum um 8 prósent.Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 16 prósent og fraktflutningar, mældum í tonnkílómetrum, jukust um 6 prósent.Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4 prósent. Það skýrist af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi áhers