Dómkvaddur matsmaður mun leggja mat á mörk milli tveggja jarða í Önundarfirði en deilur um landamerki þeirra hafa staðið yfir í meira en 100 ár. Þjóðkirkjan er eigandi annarrar jarðarinnar en til stendur að koma upp sjóböðum á hinni jörðinni en kirkjan vill meina að við stofnun nýrrar lóðar vegna áformanna hafi verið gengið á hennar rétt og horft fram hjá deilunum. Mun aðkoma matsmanns tefja frekar það ferli sem ráðast hefur þurft í vegna uppbyggingar hins fyrirhugaða baðstaðar.