Ida Auken heilbrigðis- og kirkjumálaráðherra Danmerkur hefur verið sökuð um að afbaka söguna með því að fullyrða að þjóðkirkjan þar í landi beri mesta ábyrgð á því að Danmörk hafi orðið að lýðræðisríki. Er hún sögð með þessu gera lítið úr þætti veralýðshreyfingarinnar og síns eigin flokks í þróun dansks lýðræðis og fullyrt er að töluverð óánægja sé með ummæli hennar í flokknum.