Reuters fréttaveitan segir að að minnsta kosti níu hafi verið drepnir og 46 séu særðir eftir árásir rússneska hersins í nótt. Árásir voru gerðar á 15 blokkir og fleiri byggingar og enn er verið að leita að fólki í nokkrum þeirra. Þá var einn drepinn í Butcha, norðurvestur af Kyiv.Stutt er síðan Rússar gerðu umfangsmestu árásir á borgina frá upphafi innrásarinnar, en 31 var drepinn á fimmtudag í árásum á borgina.Úkraínuher gerði árásir á orkuinnviði í borginni Sevastopol á Krímskaga í nótt sem olli víðtæku rafmagnsleysi í borginni um stund. Þá skaut rússneski herinn niður rúmlega 500 dróna í Moskvu og Pétursborg í nótt.Herir Rússa og Úkraínumanna hafa barist um yfirráð borgarinnar Kostyantynivka í Donbas-héraði undanfarna mánuði. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði á föstudaginn að rússne