Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði í nótt vegna hávaða úr heimahúsi. Í dagbók lögreglu segir að húsráðandi hafi verið orðinn heldur æstur að horfa á leik Englands og Mexíkó á HM í fótbolta.Í dagbókinni kennir ýmissa grasa, en þar má nefna að lögregla hafði afskipti af manni á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur sem ekki gat greitt fyrir veitingar sem hann hafði neytt. Þá var maður handtekinn í Árbæ. Sá var í mjög annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu, tálmaði störf lögreglu og hafði í hótunum við lögreglumenn.Mynd/Bjarni Rúnarsson