Í dag verður fínasta veður á Norðurlandi þar sem veðurspár gera ráð fyrir hægum vindi, bjartviðri og hita að 20 stigum. Sunnan- og vestanlands verður strekkingur og skýjað og uppúr hádegi fer að rigna, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Suðaustur af Hvarfi er lægð og úrkomubakki frá henni nálgast úr suðri. Í dag verður því suðaustan og austan strekkingur eða allhvass vindur og skýjað sunnan- og vestanlands en heldur hægari vindur og bjartviðri norðan heiða. Uppúr hádegi fer að rigna á suðvestantil. Hiti 9 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi.Á morgun verður suðaustan 5-13 m/s en 13-18 syðst. Víða rigning en úrkomulítið norðaustantil á landinu.Útlit er fyrir suðvestlæga átt með skúrum á miðvikudag og fimmtudag, einkum á vestanverðu landinu.