„Þú skilur ekki eftir lifandi skepnu stórslasaða“

Lögreglunni á Austurlandi berast nokkrar tilkynningar í viku á þessum árstíma um að keyrt hafi verið á búfé. Algengt er þó að ökumenn láti ekki vita þegar slíkt gerist.Margrét Ingibjörg Benediktsdóttir Hjarðar, bóndi í Njarðvík, hefur lent í því að keyrt sé á hennar fé.„Það er sjaldnast sem menn láta vita sjálfir og menn geta bara skammast sín fyrir það. Þú skilur ekki eftir lifandi skepnu stórslasaða. Það er ekki falleg aðkoma.“Þórhallur Árnason, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Austurlandi, segir mikilvægt að aka eftir aðstæðum, fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að keyra ekki á kindur. Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að flauta á kindurnar en að númer eitt, tvö og þrjú sé að hægja ferðina.
„Þú skilur ekki eftir lifandi skepnu stórslasaða“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd