Grímuklæddir innbrotsþjófar stálu skartgripum sem metnir eru á allt að fjórar milljónir evra, eða sem nemur um 600 milljónum króna, úr Lalique-glerlistasafninu í norðausturhluta Frakklands í gær.Þjófarnir brutu upp sex sýningarskápa og höfðu á brott með sér um 20 kristalsskartgripi.Bæjarstjóri Wingen-sur-Moder er afar ósáttur og segir öryggisfyrirtæki safnsins hafa brugðist, þar sem það gerði lögreglu ekki viðvart þrátt fyrir að öll viðvörunarkerfi hefðu farið í gang. Það var á endanum ræstitæknir sem kom fyrstur á vettvang og hringdi í lögregluna.Málið er litið alvarlegum augum, en aðeins nokkrir mánuðir eru síðan stórrán var framið á Louvre-safninu í París. Lalique-safninu hefur nú verið lokað tímabundið á meðan lögregla rannsakar upptökur úr eftirlitsmyndavélum.