Yfirvöld á eyjunni Rota í Kyrrahafi segja að þeim hafi borist fjöldi tilkynninga frá íbúum eyjunnar um umfangsmiklar eyðileggingar af völdum ofurfellibylsins Bavi sem fór yfir Norður-Marianas-eyjur í Kyrrahafi í morgun að staðartíma.Auga fellibylsins náði yfir alla Rota-eyju og vindhraðinn mældist um 80 metrar á sekúndu samkvæmt veðurfræðingi á eyjunum.Rota-eyja er syðsta eyjan í eyjaklasanum og um 1500 íbúar eru búsettir á eyjunni. Ekki hefur verið greint frá manntjóni en afleiðingar fellibylsins eru ekki að fullu leyti ljósar enn sem komið er. Fellibylurinn er að ganga yfir en nokkuð hvasst var einnig á norðurhluta Guam sem er sunnan Rota-eyju. Samanlagður íbúafjöldi á Norður-Marianas-eyjum og Guam er um 210.000 manns. HÁTT HITASTIG SJÁVAR HEFUR ÁHRIF Á HITABELTISSTORMA Evrópska lofts