Skotárás á Coney-eyju

Árásin var gerð á Coney-eyju í New York í Bandaríkjunum.Google mapÁtta manns, þar af fjögur börn, særðust í skotárás í húsagarði við íbúðarhúsnæði á Coney-eyju í New York á laugardagskvöld. Fólkið var í fjölskyldugrillveislu en mikil hátíðarhöld voru víða um Bandaríkin þennan dag vegna þjóðhátíðardagsins.ABC news segir að grímuklæddur byssumaður hafi skotið á fólkið með fyrrgreindum afleiðingum. Lögregluyfirvöld í New York leita enn árásarmannsins.Lögregla rannsakar hvort árásin tengist morði sem var framið fyrr í vikunni á sama svæði en það morð er talið tengjast gengjastríði.
Skotárás á Coney-eyju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd