Rífandi stemming í Osló eftir sigur Norðmanna

Um hundrað þúsund stuðningsmenn norska landsliðsins eru nú samankomnir í miðborg Oslóar til að fagna sigri sinna manna á Brasilíu í gærkvöld.Erling Haaland skoraði tvö mörk í leiknum á móti einu marki Brasilíumanna. Fólk fylgdist með leiknum víða um borg og hefur mannfjöldinn nú safnast saman í miðborginni.Norska ríkisútvarpið greindi frá því að Hákon krónprins hefði verið meðal áhorfenda á torginu fyrir framan norsku konungshöllina þar sem fjöldi fólks og horfði saman á leikinn. Stemmingin á torginu var engri lík og Hákon lét ekki sitt eftir liggja og tók þátt í róðrinum með þeim og fagnaði sínum mönnum vel.Ingiríður Alexandra prinsessa var hins vegar á leiknum í New Jersey og óskaði sínum mönnum til hamingju í búningsklefa liðsins að leik loknum.Það gæti þó reynst einhverjum erfitt að ko
Rífandi stemming í Osló eftir sigur Norðmanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd