Bretar ætla að auka eftirlit með ógnum í Norður-Atlantshafi og er það í fyrsta sinn sem þeir sinna loftrýmisgæslu hér á sjó. Sendinefnd breska varnarmálaráðuneytisins lenti á Akureyrarflugvelli í morgun og þar hittust Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Dan Jarvis, sem nýverið tók við sem varnarmálaráðherra Bretlands. Þaðan var haldið í þyrlum norður fyrir land.Flaggskip breska sjóhersins telur 14 hæðir og áhöfnin er í kringum 1300 manns. ÍSLENDINGAR FULLIR ÞÁTTTAKENDUR Í ÞVÍ AÐ EFLA ÖRYGGI Á NORÐUR-ATLANTSHAFI Ráðherrarnir tveir áttu einkafund um borð.„Þetta er bara táknrænt um það að við erum að efla öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og við Íslendingar erum fullir þátttakendur í því,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.„Þessi bönd eru sterk og