Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði.