Rafmagnsleysi og skortur á eldsneyti á Krímskaga

Íbúar Krímskaga, sem Rússar hertóku 2014, eru án rafmagns löngum stundum. Ekkert eldsneyti er að fá fyrir almenning.Úkraínuher lýsti því yfir í dag að hafa gert árásir á rafmagnsinnviði á 16 stöðum á Krímskaga síðustu tvo sólarhringa. Æ oftar er rafmagnslaust. Á kvöldin notar fólk ljós úr símum sínum því oft er slökkt á ljósastaurum.„Okkur var lofað að rafmagnið yrði aðeins tekið af í þrjá tíma og svo sett aftur á í þrjá tíma, en raunin er sú að rafmagnsleysið er mjög tilviljanakennt,“ segir starfsmaður á kaffihúsi í Feodosia á Krímskaga.Skortur er á bæði rafmagni og eldsneyti á Krímskaga eftir að Úkraínumenn hertu árásir. Ferðamönnum þar hefur snarfækkað vegna árásanna.Rússlandsher hefur gert harðar árásir í Úkraínu frá því hann hóf allsherjarinnrás 2022. Úkraínumenn hafa því þurft að ver
Rafmagnsleysi og skortur á eldsneyti á Krímskaga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd