Nóróveirusmit á Sólvangi: Á annan tug með einkenni

Nóróveirusýking kom upp á Heilsusetri Sóltúns á Sólvangi um síðustu helgi.„Um þrettán skjólstæðingar og nokkrir starfsmenn fundu fyrir mismiklum einkennum, en enginn veikst alvarlega, þar af hafa 3 tilfelli verið staðfest með sýnatöku,“ segir Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu, í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.Sóltún Heilsusetur er endurhæfingarúrræði á Sólvangi í Hafnarfirði fyrir eldra fólk í sjálfstæðri búsetu. Á Sólvangi eru rekin 43 endurhæfingarrými, 75 hjúkrunarrými og 38 dagdvalarrými. BARST EKKI Á HJÚKRUNARDEILDIR Halla segir sýkinguna ekki hafa borist yfir á hjúkrunardeildir Sólvangs og að hún sé á hraðri niðurleið. Hún væntir þess að þetta verði afstaðið innan fárra daga.Halla segir að um leið og grunur vaknaði um smit hafi deildin verið einan
Nóróveirusmit á Sólvangi: Á annan tug með einkenni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd