Búast má við umferðartöfum á meðan unnið er að Sæbrautarstokki. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir taki þrjú til fimm ár. Þegar mest lætur fara að meðaltali sjötíu vörubílar með jarðefni frá Sæbraut upp í Ölfus.Fjallað var um fyrirhugaðar framkvæmdir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í síðustu viku.Framkvæmdir við Sæbrautarstokk eiga eftir að hafa neikvæð áhrif á umferð. Þegar mest lætur fara sjötíu vörubílar á dag með jarðefni þaðan yfir í Ölfus. Stokkurinn hefur aftur á móti jákvæð áhrif þegar hann er tilbúinn.Svæðið kemur til með að gjörbreytast eftir að vegurinn verður lagður í stokk. Á um eins kílómetra löngum kafla verður grafið niður á næstum tíu metra dýpi og lagður stokkur eða göng fyrir akandi umferð. Stokkurinn verður á Sæbrautinni frá Miklubraut og norður fyrir gatn