Portúgalar fengu liðsinni frá spænskum slökkviliðsmönnum í miklum gróðureldum

Hitabylgja hefur geisað í Portúgal, á Spáni og í Frakklandi að undanförnu og hitinn náð 40 gráðum.Hitinn, ásamt vindi, hefur magnað gróðureldana. Staðan hefur verið hvað verst í Vouzela í Portúgal. Þar hafa eldar geisað síðan á fimmtudag. Slökkvistarf gekk vel í dag en það getur þó brugðið til beggja vona.„Jarðvegurinn er mjög heitur svo að eldar kvikna samstundis aftur,“ segir Miguel Lopéz, sem kom frá spænska hernum til aðstoðar. „Þegar þeir eru slökktir kvikna þeir strax aftur vegna þess hve jörðin er heit og vindurinn yfir daginn gerir mjög erfitt fyrir að slökkva á. Í dag er mikilvægt að treysta frekar þá staði þar sem við höfum náð undirtökunum og reyna að koma upp varnarsvæði. Það væri mjög gott.“Níu slösuðust í eldunum í Portúgal, tveir alvarlega.
Portúgalar fengu liðsinni frá spænskum slökkviliðsmönnum í miklum gróðureldum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd