Tekist á um samkomulag um börn með fjölþættan vanda í Kópavogi

Bæjarfulltrúar í Kópavogi eru ósammála um hvort ríkið standi við samkomulag um börn með fjölþættan vanda. Tekist var á um reglugerð ríkisstjórnarinnar á bæjarráðsfundi fyrir helgi.Jónas Már Torfason, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sakar meirihlutann og raunar bæjarstjórnir víðar um að gera flokkspólitískt upphlaup úr málinu. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, gefur lítið fyrir þá gagnrýni.Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um að ríkið taki yfir mál barna með fjölþættan vanda var undirritað í mars í fyrra. Setja á þrjá milljarða króna í málaflokkinn. 1. júní þessa árs birti Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, nýja reglugerð sem er ætlað að skýra til hvaða hóps samkomulagið nær.Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa gag
Tekist á um samkomulag um börn með fjölþættan vanda í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd