Tólfta sumarið í röð grófu fornleifafræðingar upp minjar við Stöð í Stöðvarfirði og enn er margt ókannað. Í sumar fannst jarðhýsi undir öskuhaugi sem grafið hefur verið í árum saman. Minjarnar eru frá því fyrir eiginlegt landnám. OFT HLUTSKIPTI JARÐHÝSA AÐ ENDA SEM RUSLAHOLUR Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur, stýrir uppgreftinum við Stöð. Hann segir uppgötvun jarðhýsisins bæði hafa verið óvænta og ekki. „Því að það er oft hlutskipti jarðhýsa á Íslandi að þau enda sem ruslaholur og þetta jarðhýsi hefur sannarlega endað sem ruslahola og sú ruslahola orðið að ruslahaug.“Rétt hjá jarðhýsinu er þriðji skálinn sem fundist hefur við rannsóknirnar á Stöð. Bjarni á von á því að ná að ljúka við að rannsaka hann næsta sumar. „Hann sker sig svolítið úr hinum skálunum tveimur sem við erum bún