Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands segir að þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið borgi sig eins og almennt í lífinu sjálfu að mynda sér ekki skoðun fyrr en að undangenginni skoðun. Minnir hann ennfremur á að fullveldi taki breytingum og þróist.Guðni tjáir sig um atkvæðagreiðsluna í nýjasta þætti hlaðvarps Evrópuhreyfingarinnar, Meginlandið, en það er í umsjón Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnars Þorsteinssonar.