Næstelsti sonur og arftaki æðstaklerksins Ali Khamenei var ekki viðstaddur jarðarför föður síns í dag. Þar voru hins vegar hátt settir leiðtogar Írans, svo sem forsetinn og leiðtogi byltingarvarðarins auk þriggja bræðra hans og þúsunda almennra borgara.Fyrsti dagur útfarar Alis Khamenei var í fyrradag. Hann var æðstiklerkur Írans frá 1986 en var ráðinn af dögum í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar.Sonur hans særðist í árásum í febrúar og hefur ekki sést opinberlega frá því snemma í mars. Fjarvera hans í dag gæti verið vegna hræðslu við að hann verði ráðinn af dögum.Dagurinn í dag er opinber frídagur í Íran. Lík æðstaklerksins hvílir nú í Mosalla-stórmoskunni í Tehran. Á morgun verður líkfylgd um götur borgarinnar.Vopnahlé er í gildi á milli Bandaríkjanna og Írans en óvíst er hvort