Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða manni eina milljón króna í miskabætur vegna alvarlegra mistaka og óeðlilegs dráttar við rannsókn lögreglu á líkamsárás sem hann varð fyrir árið 2020.Maðurinn krafðist þess að skaðabótaskylda íslenska ríkisins yrði viðurkennd vegna tjóns sem hann hlaut af mistökum sem urðu við rannsókn lögreglu og aðgerðir og aðkomu ákæruvaldsins að málinu. Ríkið var hins vegar sýknað af kröfu mannsins um að bera ábyrgð á því líkamstjóni sem hann hlaut í árásinni. VARÐ FYRIR LÍKAMSÁRÁS 2020 Maðurinn varð fyrir árás á skólalóð í Reykjavík árið 2020 þegar hann var á göngu með hund sinn. Hann tók eftir þremur bílum sem lagt var fyrir framan knattspyrnuvöll sem stóð við skólabyggingu. Maðurinn ákvað að taka upp síma sinn og mynda bílana og stutt