Brotist var inn á listamannaverkstæði Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt sunnudags og ýmsum tólum og listaverkum stolið þar í skjóli nætur. Hugleikur Dagsson segir að þjófarnir muni skila þýfinu ef einhver heiður er eftir meðal meðlima undirheimanna og hótar að siga Bubba Morthens á þá ef ekki verður af því.