Niðurstöður skoðanakannana í Rússlandi hafa sýnt mikinn stuðning við allsherjarinnrásina í Úkraínu síðustu ár, jafnvel yfir 70 prósenta stuðning. Útlægi rússneski hagfræðingurinn Andrei Yakovlev segir þó ekki einfalt mál að lesa út úr könnunum í Rússlandi því kúgunin sé mikil. Nýlegar kannanir benda til þess að þeim fari fækkandi sem styðji hernaðinn í Úkraínu.Yakovlev, sem starfaði sem prófessor í Rússlandi fyrir allsherjarinnrásina, nefnir í viðtali við fréttastofu atburð úr kalda stríðinu. Árið 1983 hafi áhöfn Boeing 747 farþegaflugvélar á leið frá Alaska til Suður-Kóreu villst af leið, inn í lofthelgi Sovétríkjanna og verið skotin niður utan við Sakhalín-eyju. 269 manns voru um borð og fórust allir. Yakovlev segir að á þessum tíma hafi spenna milli Vesturveldanna og Sovétríkjanna verið